Fara í efni

Opel býður fyrirtækjum einfalda orkuskiptalausn með fimm þrepa heildarlausn Brimborgar

Opel rafsendibílar eru vinsælastir rafknúinna sendibíla á Íslandi í dag með 33,2% hlutdeild af rafsendibílamarkaði og hefur sala Opel rafsendibíla næstum sjöfaldast miðað við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er sú að sífellt fleiri fyrirtæki skipta í rafmagns atvinnubíla vegna mikils ávinnings og leysa orkuskiptin með heildarlausn Brimborgar og Opel.

Fimm þrepa Orkuskiptalausn Brimborgar
Nú býður Brimborg ásamt Opel öllum fyrirtækjum, stórum sem smáum, heildstæða ráðgjöf í orkuskiptum bílaflota í fimm þrepum sem einfaldar ákvarðanatöku.

  1. Rafknúnir atvinnubílar í prufuafnot í 3 daga til að meta aksturs- og hleðsluþörf.
  2. Ráðgjöf um kaup hleðslustöðva, hönnun, uppsetningu og aðgangsstýringu.
  3. Tilboð í kaup og fjármögnun hleðslustöðva og kaup eða langtímaleigu bíla.
  4. Innifaldar þjónustuskoðanir til fjögurra ára eða að 80.000 km skv. þjónustuferli Opel
  5. 7 ára ábyrgð á bílum og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.

Orkuskiptalausn Brimborgar auðveldar orkuskipti fyrirtækja
Þegar fyrirtæki ákveða að orkuskipta bílaflotanum er að mörgu að hyggja. Hver er rétti bíllinn og dagleg akstursþörf hvers ökutækis í flota fyrirtækisins? Dugar að hlaða yfir nótt eða þarf að skjóta hleðslu inn á bílana t.d. í hádegishléi? Hversu margar hleðslustöðvar þarf á starfsstöðvar fyrirtækisins og þarf jafnvel að koma upp hleðslustöðvum við heimili starfsmanna? Eru minni AC hleðslustöðvar nægjanlegar eða þarf að setja upp DC hraðhleðslu á starfsstöð? Á að bjóða viðskiptavinum fyrirtækisins aðgang að hleðslustöðvunum gegn gjaldi og jafnvel almenningi?

Til þess að mæta þessari þörf um ráðgjöf og faglega þekkingu til orkuskipta hjá fyrirtækjum hafa Opel og Brimborg þróað Orkuskiptalausn Brimborgar. Um er að ræða nýja þjónustuleið fimm þrepa heildarlausn fyrir fyrirtæki. Lausnin felst í þriggja daga prufuakstri rafbíla, tilboði í kaup með fjögurra ára þjónustu eða að 80.000 km skv. þjónustuferli Opel, áhyggjulaus rekstur með lengri ábyrgð eða langtímaleigu, ráðgjöf við kaup hleðslustöðva, hönnun, uppsetningu, aðgangsstýringu og rekstur.

Brimborg er ekki einungis bílaumboð í fararbroddi í sölu rafknúinna ökutækja af öllum stærðum og gerðum heldur einnig rafmagnssali og rekstraraðili hraðhleðslustöðva sem eru opnar öllum rafbílanotendum. Umboðið hefur þegar sett upp vel á fjórða tug minni AC hleðslustöðva á starfsstöðvum sínum en einnig opnað DC hraðhleðslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu við Jafnasel, Hádegismóa og Bíldshöfða í Reykjavík og opnar í sumar öflugustu hraðhleðslustöð landsins í Reykjanesbæ. Þannig hefur Brimborg byggt upp sérfræðiþekkingu á sviði hleðslulausna fyrir rafbíla til þess meðal annars að miðla þeirri þekkingu áfram til sinna viðskiptavina.

Panta ráðgjöf vegna orkuskiptalausnar

Skoða Opel sendibíla nánar hér

Ávinningur af orkuskiptum bílaflota fyrirtækja í rafmagn
Ávinningur fyrirtækja af því að orkuskipta bílaflotanum í rafmagn er fjölþættur og má annars vegar skipta upp í beinan ávinning í rekstri fyrirtækisins vegna hagkvæmari reksturs bílaflotans og hins vegar í samfélagslegan ávinning.

Beinn ávinningur fyrirtækis af orkuskiptum

  • Með hleðslu á starfsstöð sparast tími og orkuverð er lægra og stöðugra sem lækkar rekstrarkostnað. Orkunýtni rafbíla er einstök vegna hagkvæmni rafmagnsmótora.
  • Nýting rafbíla í flotanum er betri bæði vegna þess að árlegur þjónustutími er styttri og einnig því hægt er að nýta bílana betur í þéttbýli kvölds og morgna vegna minni mengunar og hávaða.
  • Vinnuumhverfi fyrir bílstjóra er betra vegna minni hávaða og titrings.
  • Koltvísýringslosun frá fyrirtækinu minnkar og enginn mengun stafar frá bílunum vegna jarðefnaeldsneytis eða smurolíu sem hjálpar sjálfbærnimarkmiðum fyrirtækisins.
  • Neytendur og önnur fyrirtæki velja það í auknum mæli að eiga viðskipti við fyrirtæki sem leggja sitt af mörkum til umhverfismála og vel merktur rafbíll eru einstaklega jákvæð skilaboð til samfélagsins.

Samfélagslegur ávinningur af orkuskiptum

  • Ísland færist nær því að ná markmiðum sínum um samdrátt í koltvísýringslosun.
  • Loftgæði verða betri vegna minni sót- og NOx mengunar.
  • Orkuöryggi og orkusjálfstæði allra Íslendinga styrkist.
  • Nýtni raforku á Íslandi og dreifikerfis raforku batnar.
  • Ímynd Íslands sem land endurnýjanlegrar orku og hreins lofts styrkist.

 

Opel er þýskt, hágæða, bílamerki sem vert er að kynna sér!
Opel sendibílarnir státa af þýskum gæðum sem eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni, framúrskarandi drægni og miklum hleðsluhraða. Mikil orkunýtni, lágur rekstrarkostnaður, fyrirtaks vinnuaðstaða með góðu aðgengi, hámarks nýting, ríkulegur búnaður, fjölmargar stærðarútfærslur og margir aðrir eiginleikar tryggja vinsældir Opel rafsendibíla.

Við hvetjum öll fyrirtæki í orkuskiptahugleiðingum að kynna sér Orkuskiptalausn Opel og Brimborgar. Starfsmenn Brimborgar koma á staðinn og veita ráðgjöf um rafbíla og hleðslulausnir miðaðar að innviðum og þörfum fyrirtækja þeim að kostnaðarlausu. Skoðaðu Opel sendibíla hér að neðan.

 

Opel Vivaro-e rafmagnssendibíll

• Allt að 330 km drægni
• Hraðhleðsla (100kw) frá 20% til 80% hleðslu á u.þ.b. 30 mín
• Lágur rekstrarkostnaður og enginn útblástur
• Flexcargo - Fellanlegt sæti og lúga á þili til að flytja lengri hluti
• Allt að 6,6 rúmmetra hleðslurými

Skoða Opel Vivaro-e sendibíla eða panta ráðgjöf

 

Opel Combo-e 100% rafmagnssendibíll

• Allt að 275 km drægni
• Hraðhleðsla (100kw) frá 20% til 80% hleðslu á u.þ.b. 30 mín
• Tvær lengdir; L1 og L2
• Rúmar auðveldlega tvö vörubretti
• 750 kg dráttargeta
• Fáanlegur með rennihurð á báðum hliðum

Skoða Opel Combo-e sendibíla eða panta ráðgjöf


Vefspjall