Fara í efni

VERÐLAUN TIL THRIFTY - VALIN BESTA BÍLALEIGAN AF ERLENDUM FERÐAMÖNNUM Í KEFLAVÍK

VERÐLAUN TIL THRIFTY - VALIN BESTA BÍLALEIGAN AF ERLENDUM FERÐAMÖNNUM Í KEFLAVÍK
Starfsmenn Thrifty taka við verðlaununum
Starfsmenn Thrifty, bílaleigu Brimborgar, tóku nýlega við verðlaunum þegar leigan var valin Besta bílaleigan árið 2018 á Keflavíkurflugvelli af viðskiptavinum rentalcars.com, stærstu bílaleigubókunarsíðu í heimi, sem tekur við um 10 milljónum bílaleigubókana á ári!

Starfsmenn Thrifty, bílaleigu Brimborgar, tóku nýlega við verðlaunum þegar leigan var valin Besta bílaleigan árið 2018 (The Customer Favorite 2018) á Keflavíkurflugvelli. Það voru þúsundir viðskiptavina rentalcars.com, stærstu bílaleigubókunarsíðu í heimi, sem tekur við um 10 milljónum bílaleigubókana á ári, sem kusu.

Framúrskarandi árangur

Brimborg er leyfishafi fyrir bílaleigurnar Thrifty Car Rental og Dollar Rent a Car og er aðili að Samtökum Ferðþjónustunnar (SAF). Viðurkenningin er gríðarlega mikilvæg á framúrskarandi starfi bílaleiguteymis Brimborgar, hvort sem er í Keflavík, Reykjavík eða Akureyri og ekki síður viðurkenning til allra starfsmanna Brimborgar sem á einn eða annan hátt koma að þjónustu bílaleigunnar við viðskiptavini hennar. Allir hlekkir í keðjunni eru mikilvægir til að ná þessum framúrskarandi árangri og skemmtilegt að fá viðurkenninguna á 10 ára afmæli bílaleigunnar sem tók við sínum fyrstu bókunum í febrúar 2009. Brimborg hóf samstarf við rentalcars.com ári síðar og er Dollar Thrifty á Íslandi einn stærsti samstarfsaðili rentalcars.com á Íslandi.

Thrifty verðlaun

Sérstaklega mikilvæg viðurkenning

Viðurkenningin er sérstaklega mikilvæg í ljósi þess fjölda sem gaf Thrifty einkunn en þúsundir viðskiptavina rentalcars.com gáfu Thrifty einkunn. Customer Favourite viðurkenningarborði ásamt framúrskarandi einkunn birtist við hvern einasta bíla sem Thrifty býður til leigu á hinum geysivinsæla vef rentalcars.com. Viðurkenningin er sérstaklega mikilvæg núna því rentalcars.com herti kröfurnar á síðasta ári til að fá þessa viðurkenningu og vegur stöðugleiki þjónustugæða mun meira en áður. Þættir sem hafa áhrif á einkunn eru viðmót starfsmanna, ástand bíla, hreinleiki bíla, hraði við afgreiðslu og hraði við skil og verð og skoraði Thrifty einstaklega vel á öllum þessum þáttum.

Thrifty Shuttle bus

Bílaflutningabíll Thrifty bílaleigu

Starfsemi Thrifty bílaleigu hefur vaxið ört og erum nú fimm afgreiðslustaðir víðsvegar um landið og því mikilvægt að geta komið bílum á milli á hraðan og öruggan hátt. Bílaflutningabíllinn fer að meðaltali 2-4 ferðir milli Reykjavíkur og Keflavíkur á hverjum virkum degi. Það tekur um 30 mínútur að lesta bílinn og huga þarf bæði að hæð og lengd bílanna þegar raðað er á vagninn. Bílaflutningabíllinn er Volvo FH dráttarbíll með flutningsgetu uppá átta til tíu bíla.

Bílaflutningabíll

Bílaflutningabíll

Kynntu þér bílaleigur Brimborgar:

VEFSÍÐA THRIFTY Á ÍSLANDI 

VEFSÍÐA DOLLAR Á ÍSLANDI

SENDIBÍLALEIGA BRIMBORGAR

LANGTÍMALEIGA BRIMBORGAR


Vefspjall