Fara í efni

KOMDU Í HÁTÍÐARKAFFI Í BRIMBORG

KOMDU Í HÁTÍÐARKAFFI Í BRIMBORG
Komdu í dýrindis hátíðarkaffi
Brimborg lýkur metári með Hátíðarkaffi í húsakynnum sínum í Reykjavík að Bíldshöfða 6 og 8 og á Akureyri við Tryggvabraut 5 dagana 20. - 22. desember og 27. - 29. desember milli klukkan 10-17. Þar gefst gestum og gangandi kostur á að njóta dýrindis kaffibolla og fá sér ljúffengar trufflur með.

Brimborg fagnar góðu gengi

Brimborg lýkur metári með Hátíðarkaffi í húsakynnum sínum í Reykjavík að Bíldshöfða 6 og 8 og á Akureyri við Tryggvabraut 5 dagana 20. - 22. desember og 27. - 29. desember milli klukkan 10-17. 

Þar gefst gestum og gangandi kostur á að njóta dýrindis kaffibolla og fá sér ljúffengar trufflur með.

Þakklát fyrir gott gengi

Við hjá Brimborg erum afskaplega þakklát og stolt af góðu gengi fyrirtækisins en starfsmenn félagsins hafa náð einstökum árangri á árinu sem er að líða. Velta Brimborgar fer í fyrsta skipti yfir 20 milljarða króna, afkoman er frábær og met verður sett í fjölda nýskráninga af tegundum Volvo, Ford, Mazda, Citroën og Peugeot en yfir 3500 bílar verða skráðir á árinu. Á heildarmarkaði er sjötti hver bíll af bílamerki Brimborgar og á markaði án bílaleigubíla er hlutdeildin 17,2%. Mjög góður gangur hefur einnig verið í sölu vörubíla, vinnuvéla, bátavéla og rúta frá Volvo ásamt því að met verður slegið í útleigu bíla hjá Thrifty og Dollar, bílaleigum Brimborgar.

Við viljum þakka starfsfólki okkar sérstaklega vel fyrir og auðvitað öllum þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem komið hafa til okkar. Við óskum landsmönnum öllum gæfuríks árs og þökkum það liðna.

Vertu hjartanlega velkomin/n í hátíðarkaffi Brimborgar 20. - 22. desember og 27. - 29. desember á milli klukkan 10-17. Við hlökkum til að sjá þig. 

Hátíðarkaffi

 


Vefspjall