Brimborg varahlutir
Varahlutir fást hjá Brimborg í allar þær bíltegundir sem Brimborg er umboðsaðili fyrir. Einnig liggur fyrir gott úrval aukahluta frá bílaframleiðendum Brimborgar.
Varahlutir á lager
Varahlutir á lager í úrvali tryggir hátt þjónustustig hjá Brimborg. Fyrirtækið notar öflugt upplýsingatæknikerfi til að tryggja að réttu varahlutirnir séu pantaðir á lager í samræmi við eftirspurn.
Pantanir og fyrirspurnir um varahluti
Pantanir varahluta og fyrirspurnir um varahluti er hægt að senda í gegnum vefinn. Einnig er hægt að sérpanta varahluti sem ekki eru til á lager. Komdu, hringdu eða sendu fyrirspurn og fáðu nánari upplýsingar um varahluti og sérpantanir á varahlutum hjá Brimborg.
Ábyrgð varahluta
Ábyrgð varahluta er kappsmál hjá Brimborg sem leggur mikla áherslu á að bjóða aðeins varahluti til sölu sem uppfylla ströngustu gæðakröfur. Komi í ljós galli í varahlut sem Brimborg hefur selt eða sem Brimborg hefur notað við viðgerð á einhverjum verkstæða sinna verður hann að sjálfsögðu bættur að fullu.
Ef þú hefur yfir einhverju að kvarta, hefur ábendingu eða vilt hrósa okkur vegna varahlutakaupa hjá Brimborg skaltu smella á Hrós / Ábending / Kvörtun en það er hraðvirkur farvegur til að koma ábendingum á framfæri.