19. maí 2013
Brimborg er það sem við erum í samskiptum við aðra
Lífssýn (e. vision statement) Brimborg trúir að öryggi í mannlegum samskiptum sé leiðin til hagsældar.
Framtíðarsýn (e. vision)
Brimborg svarar þörfum samtímans með siðferðislegri fyrirhyggju og virkri þátttöku í gagnsærri uppbyggingu íslensks samfélags til framtíðar og starfar með hagsmuni allra
hagaðila fyrirtækisins að leiðarljósi í þeim tilgangi að tryggja tilvist og viðgang fyrirtækisins.
Hlutverk (e. mission)
Brimborg býður í ljósi framtíðarsýnar sinnar, til kaups eða leigu, sérsniðnar sjálfbærar heildarlausnir á sviði vélhreyfitækni auk ráðgjafar og þjónustu við framsækna einstaklinga og fyrirtæki og stofnanir.
Kjarnagildi (e. core values)
Kjarnagildin eru virðing, trúmennska og umhyggja.
Kjarnagildi skipulagsins eru grundvallarmál og skapa traust.
Traust og samvirkni leiða til góðra mannlegra samskipta.
Meginreglur (e. main rules) Brimborg skal ávallt
- starfa eftir kjarnagildum fyrirtækisins.
- trúa að góð mannleg samskipti skapi félagslegan hreyfanleika fólks og stuðli að öryggi þess og lífshamingju.
- benda fólki á það sem vel er gert svo það læri að meta gæði eða notagildi.
- hlýða lögum ásamt félagslegum og faglegum viðmiðunum um áreiðanleika, aðgengileika og notagildi.
- leitast við að skilgreina og skilja óskir og þarfir hvers hagaðila í þeim tilgangi að aðstoða hann við að uppfylla eigin markmið um hreyfanleika á hagkvæman hátt í samræmi við sérstaka hagaðilastefnu.
- sækjast eftir því að vera fjárhagslega sjálfstætt og ná fram viðunandi hagnaði til hagsbóta fyrir hagaðila.
- ráða til samstarfs fagfólk af báðum kynjum með gildismat sem samrýmist kjarnagildum og meginreglum fyrirtækisins. Fólk sem metur mikils orð og gjörðir eins og heilbrigði, ábyrgð, tillitssemi, umburðarlyndi, árangur, frumkvæði, þekkingarleit og samvirkni.
- veita reglubundna og rétta starfsþjálfun og framúrskarandi starfsaðstöðu.
- vinna með og þróa gæðastjórnunarkerfi fyrirtækisins sem byggt er á staðli International Organization for Standardization; ISO 9001:2008 í þeim tilgangi einum að auka gæði eða notagildi þjónustu Brimborgar með stöðugleika í samskiptum við hagaðila að markmiði.
Sex helstu markmið Brimborgar eru (e. main goals)
- að vera áfram í hópi þriggja eftirsóttustu fyrirtækja á íslenska vélhreyfitæknimarkaðnum hvað varðar:
-markaðshlutdeild í nýjum einingum skv. nánari skilgreiningu í sölu- og markaðsáætlun,
-hjartahlutdeild, ánægju viðskiptavina í samanburði við a.m.k. þrjá helstu samkeppnisaðila fyrirtækisins skv. nánari skilgreiningu í þjónustukönnun.
- að vera áfram eftirsóknarverður og öruggur vinnustaður, að ánægja starfsmanna sé í samræmi við markmið hverju sinni
- að vera áfram í hópi þriggja arðsömustu fyrirtækja í samkeppnisgreinum.
- að vera áfram í hópi framsæknustu fyrirtækja á Íslandi í mannréttinda- og jafnréttismálum.
- að vera áfram í hópi framsæknustu fyrirtækja á Íslandi í vinnu- og neytendaverndarmálum.
- að vera áfram í hópi framsæknustu fyrirtækja á Íslandi í umhverfismálum.
Yfirlýst markmið (e. stated goal)Hættum að selja. Einbeitum okkur að því að aðstoða viðskiptavini við að kaupa – kaupa vörur og þjónustu Brimborgar.
Kjarni: Markmið skulu ávallt endurspeglast í loforði skipulagsins um að vera öruggur staður að vera á. Hvort sem átt er við vinnustað eða stað til verslunar og þjónustu. Staðfærsla fyrirtækisins er: Brimborg - öruggur staður til að vera á.
Félagsleg ábyrgð. Höfundarréttur ©2011 Brimborg, Cohn & Wolfe. Allur réttur áskilinn.
Brimborg og Cohn & Wolfe eru skrásett merki. MIA-F-002, dags. 23.02.2011, útgáfa: 1
Uppbygging hagaðilavísis
Við störfum með hagsmuni allra hagaðila að leiðarljósi
Sjá stærri (.jpg)