Vegna viðvarandi eldgoss og hættu á frekari eldgosum vill Brimborg koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri um hvernig hægt er að forðast óþarfa tjón á farartækjum sem lenda í öskufalli.
Mikilvægt er að koma bílum og öðrum farartækjum í öruggt skjól svo sem bílskúr eða undir skýli. Ef því verður ekki viðkomið ætti að breiða yfirbreiðslu yfir farartæki. Það þarf að gæta þess sérstaklega að yfirbreiðslur séu vel festar þar sem blaktandi yfirbreiðslur geta einnig skemmt lakk með lausum endum eða núningi.
Ef aska hefur fallið á faratæki þarf að skola öskuna af sem fyrst með köldu vatni. Alls ekki má nudda eða sópa öskunni af. Að þrifum loknum skal þurrka bleytu af yfirborði viðkomandi tækis til að koma í veg fyrir að útfelling myndist vegna efna sem sitja eftir í vatnsdropum á yfirborðinu. Tími skiptir miklu máli hér því aska getur brennt sig inn í lakkið ef hún fær að liggja á því. Sjá einnig leiðbeiningar frá Iðunni.
Ef nauðsynlegt er að aka skal forðast að nota rúðuþurrkur ef aska er á rúðum. Askan virkar sem sandpappír með þurrkunum og rispar rúður. Ef bráðnauðsynlegt er að nota rúðuþurrkurnar verður að sprauta miklu af rúðuvökva á rúðuna samtímis.
Gæta skal vel að því hreinsa loftinntak fyrir miðstöðvarkerfi og þar sem það á við að gæta að frjókornasíum og endurnýja eftir þörfum.
Gætið þess að þrífa líka ösku innan úr vélarsal farartækja og af bremsum þar sem aska safnast saman og getur myndað hart lag ef hún blotnar. Með stuttu millibili ætti að huga að bremsum og alternator á verkstæði ef ekið er í ösku og hreinsa ösku í burtu.
Vélar geta farið illa ef bílum / tækjum er ekið í öskufalli. Ástæðan er sú að askan fer í loftsíur og stíflar þær. Hún getur einnig smogið í gegn um loftsíurnar og farið inn í vélarnar og eyðilagt þær. Ef loftsía stíflast þarf að hreinsa hana eða skipta um. Það er því ekki ráðlegt að vera á ferð þar sem öskufall er. Ef nauðsynlegt er að vera á ferð þarf að skipta um olíu og olíusíur á 100-200 km fresti í miklu öskufalli og 600-1200 km fresti í litlu öskufalli.