17. maí 2012
Brimborg
|
mán. 17. sep. 2007
Lífetanólvæðingin hafin á Íslandi
Forseti Íslands vígði fyrstu lífetanóldæluna fyrir E85 á Íslandi með því að dæla á fyrsta bílinn, Ford C-MAX FlexiFuel
Í dag, mánudaginn 17. september, vígði forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fyrstu og einu lífetanóleldsneytisdæluna hér á landi að viðstöddu fjölmenni. Dælan, sem staðsett er við bensínstöð Olíss við Álfheima, inniheldur tvö þúsund lítra af lífetanólinu E85, sem Brimborg keypti til landsins og Olís tók að sér flutning á og dreifingu hérlendis.
Dælan vígð
Að ræðum loknum vígði forsetinn dæluna formlega með því að setja eldsneyti á Ford C-MAX FlexiFuel, sem Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfissviðs og samgöngunefndar Reykjavíkurborgar, ók í burtu á til Hótel Nordica, til að taka þátt í umhverfisráðstefnunni Orkugjafar framtíðarinnar í samgöngum.
Viðstaddir
Fjöldi innlendra og erlendra gesta var viðstaddur þessi merkilegu tímamót í dag. Auk forseta Íslands og formanns umhverfissviðs og samgöngunefndar Reykjavíkurborgar, flutti meðal annars sendiherra Svíþjóðar, Madeleine Ströje Wilkens, nokkur orð af þessu tilefni, en Svíar hafa lengi verið í farabroddi á þessu sviði. Þá má nefna Jan Brentebraten, framkvæmdastjóra og sérfræðing í málefnum vistvænna orkugjafa fyrir bifreiðar og stefnumótunar á því sviði hjá Ford í Evrópu, Per Carstedt, stjórnarformann Etanólstofnunarinnar í Svíþjóð og Gustaf Landahl, forstjóra hreinorkustöðvarinnar í Stokkhólmi og yfirmann stefnumótunar í Evrópu varðandi málefni etanóls sem sjálfbærs orkugjafar.
Framhaldið kannað
Brimborg hefur þegar flutt inn tvær bifreiðar sem nýta lífetanól sem eldsneyti, annars vegar Ford C-Max 1,8 FlexiFuel og Volvo C30 1,8 FlexiFuel. Eitt af markmiðum verkefnisins er könnun á kostnaði við dreifingu og sölu á eldsneytinu og bílunum. Þar leikur gjaldastefna stjórnvalda stórt hlutverk. Hefur þegar náðst sá áfangi að eldsneytið verður undanþegið gjöldum, en erindi um niðurfellingu gjalda á bifreiðar bíður afgreiðslu íslenskra stjórnvalda.
Tvö þúsund lítrar í fyrstu sendingu
Í þessari fyrstu sendingu á lífetanólinu E85 komu tvö þúsund lítrar. Nafn þess, E85, gefur til kynna hlutföll lífetanóls og bensíns, sem eru 85% lífetanól og 15% bensín. Einn helsti kostur E85 umfram annað vistvænt eldsneyti eins og metangass og vetnis, er að það er í vökvaformi og má því dreifa til neytenda með sama hætti og t.d. bensíni.
Visthæfi
Brimborg lagði áherslu á mikilvægi þess að eldsneytið uppfyllti fullkomlega kröfur um visthæfi. Enda er eldsneytið upprunnið í Svíþjóð þar sem það er framleitt úr trjáafgöngum sem til falla í sjálfbærum trjáiðnaði Svíþjóðar.
Stefna yfirvalda
Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar hvað varðar vistvæna orkugjafa þá ríkti bjartsýni hjá Brimborg um að lífetanólið E85 yrði undanþegið gjöldum eins og metan og vetni. Það gekk eftir og er til marks um framsýni íslenskra stjórnvalda og eykur líkur á að markmiði verkefnisins um samkeppnishæft eldsneytisverð til neytenda náist.
Öðrum bifreiðaumboðum boðið til samstarfs
Með vígslu á fyrstu lífetanóldælunni lauk fyrsta áfanga í etanólvæðingu hérlendis og með honum hófst jafnframt annar áfangi, sem fela mun í sér könnun á möguleikum þess að flytja inn fleiri bíla, meira magn af eldsneyti og fjölga E85 dælum. Undirbúningur er þegar hafinn hjá Brimborg og verður öðrum bifreiðaumboðum boðið að ganga til samstarfs við þetta frumkvöðlastarf Brimborgar.
'FlexiFuel'
Nafnið FlexiFuel er tilvísun í þann sveigjanleika að bílarnir geta ekið án vandræða á bæði lífetanóli og bensíni sem er lykilatriði þegar innleiða þarf nýtt eldsneyti í áföngum.
Einfaldar breytingar
Einn af höfuðkostum lífetanóls er að bílaframleiðendur þurfa að gera tiltölulega litlar breytingar á bílgerðum sínum til að þær geti gengið fyrir lífetanóli. Það gerir það að verkum að verð bílanna verður samkeppnishæft og að almenningur getur tekið fullan þátt í því markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
80% minni losun koltvíoxíðs með E85
Bílar af þessari gerð losa allt að 80% minna af koltvíoxíði út í andrúmsloftið. Orkuinniheild E85 lífetanóls er þó minna en bensíns og því er eldsneytisnotkun meiri. Á móti kemur að oktantala eldsneytisins er hærri og því er hægt að ná fleiri hestöflum út úr vélinni. Verð etanólbíla liggur ekki fyrir en eitt af markmiðum verkefnisins er að fá úr því skorið.
Frekari upplýsingar