20. maí 2013
Ford
|
fös. 24. ágú. 2012
Ford Explorer bætir í... hestöflin
Nýjasta gerðin. Ford Explorer Sport með 365 hestafla vél.
Ford í Bandaríkjunum hefur kynnt til sögunnar Sport útgáfuna af Ford Explorer en jeppinn mun ráða yfir 365 hestöflum - Ford hafði áður lofað að minnsta kosti 350 hestöflum og stendur því rækilega við sitt.
Sport útgáfan verður fínasta útgáfan af Ford Explorer sem fram hefur komið fram að þessu og ætti bíllinn að verða ljónskemmtilegur með 3,5 lítra V6 EcoBoost vélinni.
Ford Explorer er venjulega útbúinn vél sem telst þónokkuð öflug enda skilar staðalvélin 290 hestöflum. En það getur munað mikið um 75 hestöfl til viðbótar og sést það best á því að með V6 365 hestafla vél Ford Explorer Sport er bíllinn öflugri en V8 gerðirnar af Dodge Durango og Jeep Grand Cherokee. Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað sú að eldsneytisnotkunin er mun betri með öflugri V6 vél en með aflminni V8 vélunum sem keppinautarnir bjóða. Þá er athyglisvert að með aukinni sparneytni bensínvélanna frá Ford er bensínknúinn bíll í morgum tilfellum ákjósanlegri kaup frekar en dísilbíll.
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar í Bandaríkjunum eftir Ford Explorer hefur reynst erfitt að anna eftirspurn á Íslandi en vonandi mun breiðara framboð tryggja það að Íslendingar fái sinn skerf af þessum spennandi og öfluga, en þó sparneytna jeppa.
Á einstaklega góðu verði, frá kr. 8.980.000, er Ford Explorer sérstaklega hagkvæmur kostur fyrir þá sem vilja 7 manna fullvaxinn jeppa með nútímalegu útliti og nýjustu tækni.