Ford EcoBoost 1.0 var nýlega valin vél ársins 2012 af breska bílablaðinu Engine Technology International. Kosningin var afgerandi og völdu 76 dómarar frá 35 löndum vélina frá Ford sem bestu vél ársins 2012 af þeim 38 vélum sem börðust um fyrsta sætið. Þessi nýja vél Ford hefur slegið í gegn og hlaut einnig fyrstu verðlaun í flokkunum „Besta nýja vél ársins 2012“ og „Besta vél ársins 2012 undir 1.0 lítra“. Frá þessu greinir m.a. vefmiðillinn mbl.is.
Í þrettán ára sögu keppninnar hefur Ford nú í fyrsta skipti tekist að hreppa efsta sætið. Og það gerðu þeir með glæsibrag. Engin önnur vél hefur áður náð jafn háu skori og EcoBoost vél Ford náði nú. Dæmt var eftir eiginleikum eins og vélarkrafti, virkni, eldsneytisnotkun, þýðleika og framúrskarandi innleiðingu tækninýjunga.
EcoBoost 1.0 setur ný viðmið
Nýja EcoBoost vélin sló ekki bara í gegn hjá dómnefndinni heldur hrósuðu bílablaðamenn henni einnig á hvert reipi. Hún hefur einnig fengið góðar móttökur hérlendis og segir Gísli Jón Bjarnason, sölustjóri Ford, Volvo og notaðra bifreiða hjá Brimborg, vélina hafa komið flestum á óvart. „Viðskiptavinir okkar hafa efast um aflið frá þessari litlu vél en það hefur komið fólki mjög á óvart hve aflmikil vélin er, sparneytin og ekki síst að hún er einstaklega hljóðlát. Vélin hentar mjög vel fyrir stóran bíl eins og Ford Focus,“ segir Gísli Jón.
EcoBoost 1.0 er fáanleg annað hvort sem 100 hestafla með eldsneytisnotkun upp á 4,8 l/ 100 km sem losar 109 g/km af koltvísýringi. Stærri gerð vélarinnar skilar 125 hestöflum og er með eldsneytisnotkun upp á 5 l/ 100 km og losun koltvísýrings upp á 114g/km.
Verðalaunavélin er einungis í Ford Focus en síðar á árinu munu Ford B-MAX og Ford C-MAX einnig verða fáanlegir með henni. Á næsta ári verður Ford Fiesta sömuleiðis útbúinn EcoBoost 1.0 vélinni sem hefur heillað bílablaðamenn alls staðar að úr heiminum undanfarið.