Leitaðu
Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

20. maí 2013
Citroën | fös. 27. apr. 2012

Nýr hugmyndabíll í DS-línu Citroën

Þessi rennilegi hlaðbakur er nýjasti hugmyndabíllinn frá Citroën, Numéro 9

Í ríki fegurðarinnar

Citroën mun frumsýna nýjan hugmyndabíl Numéro 9, á bílasýningunni í Peking síðar á þessu ári sem gefur fyrirheit um væntanlegt útlit DS-línu Citroën. Samhliða flota Citroën, kannar DS-línan ný lönd sem liggja handan hefðbundinna markalína bílaiðnaðarins.

Með róttækari nálgun veitir franski bílaframleiðandinn greininni nýja sýn á bílahönnun sem vísar veginn til framtíðar. Með því að sækja innblástur í ótrúlega hönnunarsögu fyrirtækisins undanfarna öld undirstrikar nýja DS-línan það besta í hönnun og nýsköpun Citroën. DS-lína franska bílaframleiðandans hefur hlotið frábærar viðtökur í þau tvö ár sem hún hefur verið fáanleg og bílarnir í henni selst í meira en 200 þúsund eintökum.


 

 

Hugmyndabíllinn Numéro 9 göfgar þá erfðafræðilegu ásýnd sem þegar einkennir DS-línuna. Útlit bílsins undirstrikar róttækar nálganir í hönnun sem sverja sig í ætt við skörp og auðþekkjanleg stíleinkenni fyrirtækisins sem löngum hafa verið uppspretta aðdáunar og undrunar.

 

 

Fágun er samofin nánum böndum vandaðs frágangs sem tryggir framúrskarandi akstursupplifun, þar sem hönnunin er framsækin, tækninýjungar ráðandi og sköpunargleðin fær lausan tauminn.    
  

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi