Skynsemi og notagildi að leiðarljósi
Nýi Citroën C1 hefur fengið nýtt og glæsilegt útlit sem hvarvetna hefur fengið frábærar viðtökur síðan hann var frumsýndur á bílasýningunni í Brussel í janúar. Nýi C1 er aðeins 3,44 metrar á lengd sem gerir hann stysta bíl hins franska framleiðanda og fæst hann bæði 3-dyra og 5-dyra. Nýi C1 er ákjósanlegur kostur fyrir þá sem vilja hagkvæman og umhverfisvænan bíl sem jafnframt rúmar vel fjóra uppkomna einstaklinga. Nýi Citroën C1 er lipur og þýður í borgarakstri og stærð hans gerir hann því jafnt að skynsamlegum kosti í borgarakstri og frábærum ferðabíl utanbæjar.
Eyðslugrannur og vistvænn
Nýi C1 er bæði lipur og sparsamur. Hann er knúinn áfram af 3 strokka bensínvél sem skilar 68 hestöflum. Citroën C1 er beinskiptur með 1.0i lítra vél með beinni innspýtingu og með eldsneytisnotkun upp á aðeins 4,3 l/100 km í blönduðum akstri. Í nýju gerðinni af C1 hefur verið dregið umtalsvert úr útblæstri koltvísýrings sem er aðeins 99 g/km.
Karakterinn kemur að utan
Með nýju útliti hefur C1 öðlast aukið aðdráttarafl, heilsteyptari persónuleika. Allt ytra útlit bílsins endurspeglar það – allt. Vélarhlífin er styttri, framljósin hringlaga og framstuðarinn endurhannaður sérstaklega fyrir sportleg LED-þokuljósin en þau eru sjaldséð í þessum flokki fólksbíla. Afturhluti C1 er útbúinn nýstárlegum afturljósum (glass tailgate) auk þess sem hann er fyrsti Citroën C1 sem er á 14 tommu „Notus-Design“ dekkjum.
Sköpunargleði og tækniframfarir
Nýi C1 er ríkulega útbúinn nýjum tæknibúnaði. Í fyrsta skipti fæst Citroën C1 með gírskiptingu í stýri og rafknúnum gírkassa. Útvarpið hefur fengið nýtt útlit og er í stíl við mælaborðið. C1 er með nýju hljóðkerfi sem les allar mp3-skrár auk þess að vera með tengi fyrir USB og Bluetooth-kerfi.