SARTRE-verkefnið felst í því að notaðar eru myndavélar og sérstakir nemar sem tengdir eru við radar. Sérútbúinn vörubíll leiðir bílalestina og sér um að aka hinum bílunum í bílalestinni sem eru þrír og af gerðinni Volvo á hraðanum 90 km/klst þar sem bilið á milli þeirra 6 metrar. Í lok ársins vonast aðstandendur verkefnisins til þess að bílalestin telji 6 bíla. Markmið verkefnisins er að minnka eldsneytisnotkun, gera umferðina skilvirkari og draga úr mistökum ökumanna í framtíðinni.
Aðkoma hagsmunaaðila
Nauðsynlegt er að átta sig á þeirri áskorun sem felst í að hleypa verkefni af þessari stærðargráðu af stokkunum. Í verkefninu þarf ekki einungis að fást við áskoranir sem eru tæknilegs eðlis, heldur þarf einnig að rannsaka hvort ráðast þurfi í breytingar á vegakerfinu svo að unnt sé að hrinda verkefninu í framkvæmd. Þeir hagsmunaaðilar sem koma að verkefninu á fyrstu stigum þess verða m.a. tæknisérfræðingar, stjórnmálamenn, löggjafinn og þeir sem annast rannsóknir á umferðaröryggi
Helstu kostir verkefnisins
Helstu kostir verkefnisins eru þeir að ökumenn hafa tíma til að sinna öðrum hlutum auk þess sem bílalestin stuðlar að öruggari ferðamáta þar sem bíllinn sem leiðir bílalestina hefur samskipti við hina bílana en það hefur í för með sér sjálfvirkni og skemmri viðbragðstíma. Áhrif á umhverfið verða minni vegna nálægðar bílanna hver við annan og þess vegna mæta bílarnir minni loftmótstöðu sem áætlað er að spari eldsneytisnotkun um 20% auk þess sem öll umferð á evrópskum hraðbrautum verður skilvirkari.