Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

22. febrúar 2012
Mazda | fim. 19. jan. 2012

Mazda CX-5 er með minnstu eldsneytisnotkun í sínum flokki

Mazda CX-5.

Bandaríska umhverfisstofnunin EPA kynnti nýlega tölur um eldsneytisnotkun 2013 árgerðarinnar af Mazda CX-5 sportjeppanum. Allar 2013 árgerðir af CX-5 sportjeppanum eru búnar Skyactive-G útbúnaðinum, með 2,0 lítra bensínvél sem er með hæsta samþjöppunarhlutfall sem finnst hjá fjöldaframleiddum bílum, eða 13:1. Skyactive tæknin gerir það að verkum að aukinn kraftur fæst út úr hverjum lítra í samanburði við venjulegan bruna hefðbundinna bílvéla. CX-5 er auk þess léttasti bílinn í sínum flokki og er þyngd hans óbreytts einungis 1458 kg, en allt að 1557 kg sé hann sérútbúinn.

Með nýja 4-2-1 útblásturskerfinu, skilar CX-5 160 hestöflum við 6000 snúninga á mínútu og togar 210 Nm við 4000 snúninga. Hægt er að velja um 6 þrepa beinskiptan bíl með Skyactive-MT búnaðinum eða 6 þrepa sjálfskiptan bíl með Skyactive-Drive sem hefur toggetu upp á 909 kg og nýju fjórhjóladrifi. Þetta gerir það að verkum að nýi CX-5 býður upp á eitthvað fyrir alla. Mazda CX-5 verða fáanlegir með bæði dísil-túrbó vélum og bensínvélum. Dísilvélarnar munu skila 150-175 hestöflum og toga 380 til 420 Nm. Reiknað er með að bíllinn komi til landsins í vor.
 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli