22. febrúar 2012
Volvo rútur
|
fös. 13. jan. 2012
Ný Volvo 9500 hópferðabifreið komin til landsins
Volvo 9500 rúta
Nú er komin til landsins glæsileg ný 12,3 m Volvo 9500 hópferðabifreið. Hér er um að ræða Volvo 9500 hópferðabifreið sem smíðuð er af Volvo frá grunni. Gefst aðilum í ferðaþjónustu þá tækifæri til þess að skoða og reynsluaka Volvo 9500 bifreiðinni. Hér er á ferðinni 49+1+1 sæta hópferðabifreið sem er mjög vel útbúin í alla staði með WC, AC loftkælingu, hljóðkerfi og DVD.
Volvo 9500 er með D9B Euro 5, 9 lítra 380 hestafla vél sem er að skila 1740 Nm togi. Gírkassinn er 12 gíra I-Shift, rafstýrður sjálfskiptur gírkassi sem hefur reynst frábærlega þegar kemur að aksturs eiginleikum. I-Shift gírkassinn frá Volvo hjálpar ennfremur til þegar horft er í hráolíueyðslu, en samhæfing vélar og gírkassa gerir það að verkum að snúningur vélar er ávalt sem hagkvæmastur miðað við togkúrfu, þ.e. að nota besta gírinn hverju sinni miðað við aðstæður. Bremsubúnaður Volvo 9500 er mjög öflugur en diskabremsurnar eru rafstýrðar (EBS) og útbúnar stöðugleikastýringu (ESP), en jafnframt er vélin með aflmikla mótorbremsu (VEB) ásamt vökvabremsu (retarder).
Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar bíður rekstraraðilum í fólksflutningum að kíkja í heimsókn til okkar til að reynsluaka bifreiðinni.
Hafðu samband við okkur, komdu og kíktu í kaffi. Keyrðu Volvo 9500 með I-Shift.