Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

22. febrúar 2012
Citroën | mið. 30. nóv. 2011

Citroën C3 Airdream fær góða dóma á billinn.is

Citroën C3 Airdream

Nýverið fjallaði Sigurður Már Jónsson um nýja Citroën C3 Airdream á vefsíðunni billinn.is. Í dómi hans segir meðal annars: „Citroën C3 er ansi snotur bíll, frískur akstursbíll og vel búinn. Hér var hann reyndur með þaulæfðri díselvél og eyðslan var þannig að nálin varla hreyfðist en þess má geta að hann er með aðra kynslóð af svokallaðri start stop tækni sem dregur verulega úr mengun.“

Rétt er að árétta að Citroën C3 Airdream er nýr bíll á Íslandi en bíllinn var frumsýndur í haust hjá Brimborg. Citroën C3 sem gerð er hinsvegar þegar komin á markað á Íslandi.

Sigurður nefndi auk þess verðstefnu í dómi sínum og bar hann Citroën C3 saman við bílana VW Polo og Ford Fiesta en Citroën C3 Airdream er í raun aðeins sambærilegur við VW Polo Bluemotion og Ford Fiesta Econetic sem eru bílar með sérstökum mengunarvörnum eins og Airdream. Slíkir bílar fá frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur. VW Polo Bluemotion hefur hinsvegar ekki verið pantaður til landsins af Heklu þar sem sá bíll er með lægri fjöðrun og án varadekks sem Hekla telur ekki henta íslenskum aðstæðum. Auk þess er hann væntanlega dýrari en venjulegur Polo vegna sérhæfðs megnunarbúnaðar. Ford Fiesta Econetic er hinsvegar samanburðarhæfur bíll við C3 og er hann til hjá Brimborg og kostar kr. 3.090.000.-


 

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli