22. febrúar 2012
Volvo vörubílar
|
þri. 01. nóv. 2011
MS Selfossi fékk á dögunum afhendan nýjan Volvo FMX
Á myndinni sem tekin var við afhendingu Volvo FMX á Selfossi nú á dögunum eru þeir frá vinstri: Guðlaugur Stefánsson bílstjóri, Ólafur Árnason hjá Brimborg, Garðar Gestsson aðstoðarverkstjóri flutningadeildar og Guðmundur Geir Gunnarsson Mjólkurbússtjóri MS Selfossi.
Er hér um að ræða fyrsta Volvo FMX sem kemur til landsins. Hann var sendur í ábyggingu til VM Tarm a/s í Danmörku og var þar settur á vörubifreiðina 20.000 lítra mjólkurtankur.
Eins og áður sagði er þetta fyrsta Volvo FMX vörubifreiðin sem hingað til lands kemur. Volvo FMX er hugsaður fyrir erfiðustu flutningsverkefnin, mikla þyngd, slæma og bratta vegi. Eins og segir hjá Volvo Truck: „því erfiðari verkefni, því meira er Volvo FMX á heimavelli“.
Driflínan
Volvo FMX vörubifreiðin sem MS Selfossi hefur fengið afhenta er á fjórum öxlum 8x4RT, einu framöxli, tveimur drifhásingum og beygjanlegum búkka fyrir aftan drifhásingar. FMX vörubifreiðin kemur með nýrri D11C, 11 lítra vél sem er 450 hestöfl sem er að skila allt að 2150 Nm togi á 950-1400 s/m. Vélin uppfyllir EURO 5 mengunarstaðla. I-Shift sjálfskipur 12 gíra gírkassi sér um að skila afli vélarinnar út í hjól og öflug vökvabremsan (retarder) ásamt mótorbremsunni í frábærri samvinnu með I-shift gírkassanum sér til þess að nægir bremsukraftar, fyrir utan öflugar diskabremsur séu til staðar.
Ökumannshúsið
Vinnustaður ökumannsins er eitt af þeim mörgu atriðum sem Volvo Truck leggur mikla áherslu á í sinni framleiðslu. Þægilegur vinnustaður með góðu aðgengi að stjórntækjum skapar meira öryggi við akstur, ökumanni líður betur við sín daglegu störf sem gerir það að verkum að hann heldur betur einbeitingu við aksturinn og verður síður þreyttur. Ökumannshúsið á Volvo FMX sem MS á Selfossi fékk afhentan nú á dögunum er mjög vel útbúið í alla staði. Með vörubifreiðinni kemur svefnhús með AC loftkælingu, olíumiðstöð, fjölstillanlegt loftfjaðrandi sæti með öryggisbelti, litað gler, stjórntæki fyrir útvarp og CD í stýri, topplúgu o.m.fl.
Brimborg óskar MS Selfossi til hamingju með hinn nýja glæsilega Volvo FMX vörubíl.


