Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

04. febrúar 2012
Ford | fös. 05. mar. 2010

Ford Mustang er sparneytnasti bíllinn yfir 300 hestöflum

Nýr Ford Mustang V6 mun skarta 305 hestafla vél og vera afar sparneytinn.

Samkeppnin hefur enda aukist og nú dugar kannski ekki lengur að bjóða upp á endalaust mörg hestöfl. Mustang hefur verið ráðandi á markaði kraftabíla í Bandaríkjunum um áraraðir en nú bjóða Chevrolet og Dodge líka bíla sem eru í beinni samkeppni við Ford Mustang.

Ford fetar hinsvegar aðrar slóðir með Mustang en keppinautarnir gera. Nú mun nýjasta kynslóð Ford Mustang bílsins einnig fást með 3,7 lítra V6 vél sem mun skila 305 hestöflum. Það verður að teljast prýðisgott sem byrjunarvél í þennan kraftalega bíl, fyrsta V6 vélin í nýju kynslóð Mustang var 210 hestöfl. Það sem er hinsvegar framúrskarandi er sparneytni vélarinnar því um er að ræða sparneytnustu vél í heiminum í þessum afl flokki að sögn Ford.

Í innanbæjarakstri er uppgefin eyðsla bílsins 12,38 lítrar á hundraðið en í langkeyrslu er hún 7,59 lítrar á hundraðið ef bíllinn er með nýju sex gíra sjálfskiptingu Ford.

Nýir tímar – nýjar lausnir

Ford segir að nýi V6 Ford Mustang bíllinn sé því opinberlega sparneytnasti bíllinn í sínum flokki, því um er að ræða fyrsta bílinn sem skilar yfir 300 hestöflum og nær eyðslu sem er minni en 7,84 lítrar á hundraðið í langkeyrslu (það eru 30 mílur fyrir hvert gallon af eldsneyti sem er sú mælieining sem Bandaríkjamenn nota).

Þennan árangur má líka þakka óhefðbundinni nálgun Ford á því að draga úr eldsneytiseyðslu. Fram til þessa hefur það verið vanalegt að beinskiptir bílar séu sparneytnari en sjálfsskiptir bílar. Nú hefur Ford Mustang hinsvegar snúið þessu við. Nýjasta sjálfskipting Ford, sem er sex gíra og beitir sérvöldum gírhlutföllum og skiptingarforritun, er nefnilega sparneytnari en beinskipting.

Það eru því nýir tímar að hefjast hjá kraftabílunum þar sem kröfur framtíðarinnar verða um afl og sparneytni.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli