Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

04. febrúar 2012
Volvo Penta | fim. 18. feb. 2010

Nýr bátur Siglfirðinga með Volvo Penta

Brimborg óskar Siglfirðingum til hamingju með Odd á Nesi.
Báturinn er 14.96 brúttótonn og er lengd hans 12,36 m og breiddin 3,90 m. Vélbúnaður er frá Volvo Penta en vélin er af gerðinni D-12 sem er 650 hestöfl en Volvo Penta vélar eru í forystu þegar kemur að vali á báta- og skipavélum. Rúmtak vélarinnar er 12,1 líter, sex strokka og er ljóst að um öfluga vél er að ræða sem hentar afar vel í bát af þessari gerð.

Bátur Siglufjarðar Seig ehf. er yfirbyggður hraðfiskibátur og er aðbúnaður mjög góður eins og sjá má á myndum fréttavefsins siglo.is. Það er útgerðarfélagið Nesið sem er kaupandi bátsins og óskum við hjá Brimborg Siglfirðingum, útgerðarfélaginu og Siglufjarðar Seig til hamingju með áfangann.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli