04. febrúar 2012
Brimborg
|
mið. 17. feb. 2010
Starfsfólk Brimborgar bregður á leik á öskudag
Klæðnaður starfsfólksins er með óvenjulegum hætti í dag enda öskudagur.
Gestir og gangandi ættu ekki að láta sér bregða þó einhverjar furðuverur sjáist í Brimborg í dag. Starfsfólk fyrirtækisins er vant að taka á móti krökkum á þessum degi og ekki er laust við að gleði barnanna sé smitandi því í morgun mættu allskonar karakterar til vinnu sem ekki hafa sést áður á vinnustaðnum, nema sem gestir.
Karlar í kjólum, einskonar rapparar, flugstjóri, rauðhetta, atvinnumaður í fótbolta og rokkari voru á meðal starfsmanna í morgun og hafa vissulega vakið verðskuldaða athygli.
Annars er þetta skemmtilegur dagur. Starfsfólk nýtur þess að fá söng og góða gesti í allan dag og er það kærkomin tilbreyting, góð áminning að senn sé veturinn á enda og vorið á leiðinni.
Samkvæmt vísindavef Háskóla Íslands á
öskudagurinn rætur sínar að rekja allt aftur til 14. aldar. Dagurinn tengist föstunni og hefur það tíðkast að gera sér glaðan dag síðustu dagana fyrir lönguföstu.