04. febrúar 2012
Volvo
|
fim. 11. feb. 2010
Volvo í samstarfi um yfirbyggingu sem getur geymt rafmagn
Efnið er nothæft í yfirbyggingar og getir tekið við hleðslu og sleppt henni.
Það eru mörg ár í að tæknin komist á framleiðslustig en
hugmyndin er nýstárleg og gæti haft mikil áhrif í bílaframleiðslu og jafnvel víðar. Um er að ræða sérstaka efnablöndu sem getur tekið við hleðslu, geymt rafmagn og gefið frá sér straum og er haldið saman af koltrefjablöndu en það er einmitt þessi samsetning sem gerir efnið ákjósanlegt í yfirbyggingar. Hægt væri að nota efnið í húdd, þak, innri bretti bifreiðar og víðar.
Ef tæknin kemst í notkun mun ýmislegt breytast í bílum. Meðal annars verður ástæðulaust að notast við rafgeyma og rafmagnsleiðslur, sem eru orðnar afar fyrirferðarmiklar í nútímabílum. Sem dæmi er nefnt að GPS leiðsögutæki gæti tekið straum beint úr klæðningunni umhverfis tækið og því væri engin þörf fyrir langa kapla að rafgeymi bílsins.
Það er augljóslega til mikils að vinna í þessari tækniþróun og er gert ráð fyrir að þyngdarsparnaður vegna þessarar tækni geti verið um 15%. Þá eru ótaldir aðrir kostir eins og allt það pláss sem mun sparast.