Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

04. febrúar 2012
Volvo vörubílar | þri. 22. des. 2009

Volvo fyrstir með vörubíla sem ganga fyrir metani og dísil og uppfylla Euro 5 staðalinn

Volvo vörubílar sem ganga fyrir metani og dísil geta dregið verulega úr mengun og sparað eldsneyti umtalsvert.
Volvo vörubílar mun fara af stað með prófanir í Svíþjóð og Bretlandi á næsta ári til að prófa nýjan búnað sem talið er að muni geta dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 80%. Með því að koma fyrir auka eldsneytiskerfi og gaskútum verður hægt að blanda metaninu við dísilolíuna en þetta gerir það að verkum að langdrægni vörubílanna eykst til muna, eða um allt að 50%. Reyndar gerir Volvo einnig ráð fyrir því að hægt verða að nota metan undir þrýstingi, eða fljótandi, en þá ætti að vera hægt að tvöfalda langdrægnina. Þetta er afar mikilvægt í ljósi þess að metan er ekki fáanlegt hvar sem er á dælustöðvum þó í raun sé nóg til af metani á jörðinni en metan er talin stærri orkulind en olían.

Metan í miklu magni

Metanbirgðir jarðarinnar eru eins og gefur að skilja gríðarlegar, meiri en sem nemur olíubirgðum eins og áður var sagt, og ljóst er að æskilegt væri að nýta metan betur þar sem það er mun skaðlegri gróðurhúsalofttegund en CO2. Ennfremur væri hægt að nota lífrænt dísil til að blanda með metaninu og með því móti væri búið að ná miklum umhverfislegum ávinningi; orkusparnaði og miklum samdrætti útblásturs. Kostirnir vega þannig mun þyngra en gallarnir sem eru helst bundnir við óskilvirkt dreifikerfi en það stendur til að bæta úr því á flestum markaðssvæðum.

Hingað til hefur vandinn við að nota gas í dísilvélar verið sá að þörf hefur verið á kveikjukerti til að kveikja í gasinu í brunahólfi vélarinnar. Volvo leysir vandann hinsvegar með því að nota hefðbundinn dísilbruna, undir þrýstingi í byrjun, en sá bruni sem verður til við þrýstinginn kveikir svo í metan/loft blöndunni. Það er því engin þörf á kveikjukerti (hér er verið að vísa í fjórgengis hönnun Nicolaus Otto) og því er hægt að nýta sérlega góða nýtingareiginleika Euro 5 dísilvélanna frá Volvo að fullu.

Niðurstaðan er sú að engin munur verður á notagildi vörubíla með þessari tækni, en umhverfislegur ávinningur verður hinsvegar mjög mikill. Að auki munu vörubílarnir geta ekið á dísilolíu þegar metan er ekki fáanlegt en þetta er lykilatriði í því að gera þessa tækni að ákjósanlegum kosti fyrir fyrirtæki. Það er búist við að þessi tækni verðu mun hagkvæmari en það sem keppinautarnir hafa á prjónunum.

Miklir kostir

Tæknin gerir ráð fyrir því að hægt verði að nota allt að 80% metan á móti dísilolíunni. Til að byrja með verður þó gert ráð fyrir 70% af metani og á meðan á prófunartímabilinu stendur verður restin úr blöndu lífdísils og dísil.

Kostirnir verða eins og áður segir mjög miklir. Búist er við að hægt verði að draga úr útblæstri um 80% miðað við hefðbundnar dísilvélar ef notast er við lífrænt gas og dísil. Metan er sett á vörubíla á samskonar hátt og dísil og því er ekki um neitt óhagræði um að ræða frá fyllingunni. Að auki er metan í flestum tilfellum innlend framleiðsla sem mun skipta miklu máli í rekstraráætlunum fyrirtækja þar sem hægt verður að skipuleggja fram í tímann með mikilli nákvæmni m.t.t. eldsneytisverðs þar sem metan er ekki háð heimsmarkaðsverði líkt og dísil og bensín. 

Aðstæður til þróunar

Volvo segir mikilvægt að hafa í huga að um þessar mundir sé talsverð eftirspurn eftir vörubílum sem gangi á gasi jafnt sem dísilolíu. Fyrir þessu eru tvær megin ástæður. Í fyrsta lagi er um að ræða sparnaðarráðsstafanir sem mörg fyrirtæki hafi farið út í á meðan hagkerfið fór í niðursveiflu. Metan er eldsneyti sem almennt er mun ódýrara en dísil en fæst þar að auki orðið víða. Í öðru lagi eru strangar mengunarkröfur farnar að hafa áhrif á hverskonar vörubílar eru valdir til notkunar innanbæjar. t.d. í stórborgum þar sem miðbæjarkjarnar geta verið lokaðir fyrir vörubílum sem ekki uppfylla ströngustu kröfur.

Þróunin verður því hröð á næstu mánuðum og stutt er þangað til að metan vörubílarnir verða fáanlegir. Þeir gætu hentað vel til notkunar innabæjar í Reykjavík en metanstöð er að finna í Ártúnsbrekkunni en einnig munu metan vörubílarnir frá Volvo falla mjög vel að áætlunum Brimborgar um visthæf skref.

Það er ljóst að rekstraraðilar munu njóta góðs af Euro 5 mengunarvarnarstaðlinum og jafnframt má búast við 25% minni eyðslu miðað við vörubíla sem ganga eingöngu á gasi. Samt sem áður munu afl og notagildi vörubílanna verða svipað og í dísil vörubílum og hægt verður að aka eingöngu á dísil sem kemur sér vel á meðan verið er að byggja upp dreifikerfi fyrir metan. Búist er við að Volvo vörubílarnir munu verða mjög eftirsóttir enda eftir miklu að slægjast ef hægt er að draga úr eldsneytiskostnaði og losun CO2 í einu og sama vetfangi.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli