Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

04. febrúar 2012
Notaðir bílar | fim. 03. des. 2009

Söluátak notaðra bíla Brimborgar hafið eftir góða sölu undanfarið

September var söluhár mánuður enda úrval notaðra bíla þá nokkuð gott eftir sumarið, verðin góð og salan eftir því. Þessu viljum við að sjálfsögðu fylgja eftir og á þriðjudaginn birtist auglýsing frá okkur í Fréttablaðinu þar sem við hleypum af stað söluátakinu „Náð‘í jólabílinn í Brimborg í dag“.

Um er að ræða góð tilboð á notuðum bílum og eins og áður þá er úrvalið mest í byrjun og bílarnir á besta afslættinum eru fljótir að fara þannig að það borgar sig að festa sér bíl strax.

Úrvalið er enn sem komið er gott og hægt að finna eitthvað fyrir flesta; jeppa, pallbíla, jepplinga, fólksbíla, skutbíla, dísilbíla og aðra sparibauka.

Jólatilboð í Brimborg
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli