04. febrúar 2012
Volvo rútur
|
fös. 30. okt. 2009
Græni strætisvagninn Volvo 7700 Hybrid
Tvinnstrætisvagninn Volvo 7700 Hybrid frá Volvo Bus eyðir allt að 35% minna af hráolíu en sambærilegir vagnar af hefðbundinni gerð.
Busworld er ein af stærri sýningum Evrópu á hópferðabílum og strætisvögnum. Hún fer fram annað hvert ár í belgíska bænum Kortrijk og var sú sem fram fór núna í október að vanda glæsileg í alla staði.
Volvo Bus hefur verið meðal fastra sýnenda á Busworld. Að þessu sinni var sýningarbás fyrirtækisins helgaður grænni orku eða “Green Efficiency”.
Bláir þjónustusamningar í þágu hagkvæmari og visthæfari rekstrar
Enn fremur kynnti Volvo Bus bláa þjónustusamninga, en með þeim geta viðskiptavinir lagt grunninn að lágum heildarkostnaði og litlum umhverfisáhrifum (low eco-imprint).
Vagnarnir sem voru til sýnis voru Volvo 9700 og Volvo 9900 hópferðabílar sem eru komnir með nýja 13 ltr. vél. Vélin, sem er hjartað í þessum bílum hefur verið í notkun hjá Volvo Trucks undanfarin 2-3 ár með frábærum árangri, en auk þess að skila meira afli eyðir hún allt að 5% minna eldsneyti.
Eyðir allt að 35% minna af hráolíu
Athyglisverðasti vagn sýningarinnar var þó tvímælalaust Volvo 7700 Hybrid, sem er talinn eini raunhæfi tvinnstrætisvagninn á markaðnum, en sem dæmi um visthæfni hans má nefna að hann eyðir allt að 35% minna af hráolíu en sambærilegir strætisvagnar af hefðbundinni gerð.
Með kveðju til Íslands
Góður hópur Íslendinga lagði leið sína á sýninguna. Hittu margir þeirra Timo Nellemose frá Volvo Bus og langar hann að þakka þeim fyrir komuna á Volvo Bus sýningarbásinn.
Þess má svo geta að Timo var einmitt staddur hér á landi um síðustu mánaðamót og hitti þá nokkur fyrirtæki og rekstraraðila í fólksflutningum að máli.