Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

07. september 2010
Volvo vinnuvélar | fös. 03. apr. 2009

Nýr fræsari Volvo

Volvo MW500 fræsarinn er fáanlegur með fjórhjóladrifi sem tryggir hámarks veggrip, og spólvörnin ASC(Anti Slip Control) er staðalbúnaður.

Nýi fræsari Volvo, MW500, er bæði smár í sniðum og lætur auðveldlega að stjórn. Ýmis smærri verk verða ekkert mál eins og viðgerðir, samskeytaskurður og að skera þröngt, til dæmis í kringum hindranir á götum og akbrautum.
Vélin, sem er fjögurra hjóla og er hlaðin að aftan, er með 500 mm staðalskurðarbreidd og hámarks skurðardýpt er 210 mm. Þröngur skurðarradíusinn, 200 mm, er sambærilegur við margar þriggja hjóla vélar sem eru á markaði.

Fjórhjóladrifinn

Volvo MW500 fræsarinn er fáanlegur með fjórhjóladrifi sem tryggir hámarks veggrip, og spólvörnin ASC(Anti Slip Control) er staðalbúnaður. Line Manager System Volvo vinnur með spólvörninni við að tryggja að stjórnandi geti haldið stöðugum hraða og stýringu, án þess að snúningur fræsaratromlunnar hafi þar áhrif.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli