Leitaðu
Smelltu á vörumerki Brimborgar

Þættir úr sögu Brimborgar


Saga Brimborgar er viðburðarík og að sumu leyti ævintýraleg. Fyrirtækið var stofnað árið 1977 þegar innflutningur hófst á Daihatsubílum frá Japan en það er eins með þessa sögu og allar góðar sögur að þær eiga sér aðdraganda.

Ventlaviðgerðir við Köllunarklettsveg
Upphafið má rekja aftur til ársins 1964 þegar bílaverkstæðið Ventill, tók til starfa við Köllunarklettsveg með ventlaviðgerðir sem sérgrein. Fljótlega tók fyrirtækið að sér þjónustu á Toyotabílum og í framhaldi af því var stofnuð varahlutaþjónusta um þann rekstur, Toyotavarahlutaumboðið, árið 1969. Tengingin við Toyota tók á sig ýmsar myndir og ein þeirra var innflutningur á Toyota saumavélum sem hófst árið 1973. Saumavélarnar áttu heldur betur eftir að koma við sögu síðar.

Saumavélin markar sporin
Um miðjan áttunda áratuginn varð ljóst að Toyotaumboðið ætlaði sér að taka við allri viðgerðar- og varahlutaþjónustu á Toyotabílum þannig að eigendur Ventils og Toyotavarahlutaumboðsins urðu að finna fyrirtækjum sínum nýjan rekstrargrundvöll. Þar komu þá við sögu Toyota saumavélarnar, en fyrir milligöngu framleiðanda þeirra komst á samband við japanska bílaframleiðandann Daihatsu. Það reyndist happadrjúgt samband. Samningur um innflutning og einkaumboð fyrir Daihatsubíla var undirritaður 1976 og árið eftir tók Brimborg formlega til starfa.

Þar með var fyrsti kaflinn í sögu Brimborgar hafinn en hann stóð yfir í tíu ár og jókst velta fyrirtækisins stöðugt.

Brimborg yfirtekur Volvo umboðið
Þann 22. júlí 1988 urðu kaflaskipti í sögu Brimborgar er fyrirtækið keypti Volvoumboðið á Íslandi, Velti h.f. og gerðir voru samningar um einkaumboð Brimborgar fyrir Volvo á Íslandi. Við það jukust umsvif fyrirtækisins verulega því með umboðinu fylgdu allar framleiðsluvörur Volvo, fólks- og vörubílar, langferðabílar og strætisvagnar, Volvo Penta báta- og ljósavélar, vinnuvélar og vökvadælur, auk viðhalds- og varahlutaþjónustu. Auk framangreinds hóf Brimborg innflutning á ýmsum öðrum vörum svo sem HIAB vörubílskrönum, Focolift vörulyftum, Multilift gámakrókum, Hultsteins kælitækjum fyrir vörubíla, Pirelli og Nokian hjólbörðum og Zetterbergs vörubílspöllum svo eithvað sé nefnt.

Annar kaflinn í sögu Brimborgar var hafinn.

Brimborg kaupir Ford og Citroën
Þann 31. janúar 1995 urðu önnur kaflaskipti í sögu Brimborgar er fyrirtækið yfirtók Ford og Citroën umboðin af Glóbus. Samningar um einkaumboð Ford og Citroen voru í höfn og var ákveðið, með samþykki Citroën í Frakklandi, að bíða með kynningu og uppbyggingu á Citroën merkinu fyrst um sinn. Áhersla var lögð á uppbyggingu Ford vörumerkisins á Íslandi. Með Ford umboðinu fylgdu allar framleiðsluvörur Ford, fólks-, sendi-,,jeppa-,pall- og hópferðabílar, auka viðhalds- og varahlutaþjónustu.

Þriðji kaflinn í sögu Brimborgar var hafinn.

Brimborg kaupir Þórshamar á Akureyri
Þann 1. Október 1996 urðu svo enn ein kaflaskipti í sögu Brimborgar er fyrirtækið keypti Þórshamar á Akureyri og nafni fyrirtækisins var breytt í Brimborg-Þórshamar, fyrst um sinn og síðar Brimborg Akureyri.   Þetta er í fyrsta skipti sem bílaumboð opnar fullbúið útibú utan Reykjavíkur sem er að fullu í eigu þess. Markmið Brimborgar með þessum kaupum er að styrkja stöðu sína á landsbyggðinni og bæta þjónustu fyrirtækisins við fjölmarga viðskiptavini þess úti á landi ásamt því að auka sölu á vörum fyrirtækisins.

Fjórði kaflinn í sögu Brimborgar var hafinn.

Brimborg þrefaldast að stærð á aðeins fjórum árum
Gríðarlegur vöxtur verður hjá Brimborg frá árinu 2001-2005 og þrefaldast fyrirtækið að stærð á aðeins fjórum árum.  Svona hraður vöxtur hefur óhjákvæmilega í för með sér vaxtarverki en samhentur hópur Brimborgara hefur eins og svo oft áður tekist að höndla þennan vöxt af skynsemi og lagt  á sig mikla vinnu samhliða vextinum.

Brimborg fær Mazda umboðið
Þann 1. október 2005 tók Brimborg við Mazda umboðinu á Íslandi.  Framtíðarhúsnæði Mazda verður, steinsnar ,frá núverandi húsnæði eða að Bíldshöfða 8 í Reykjavík.  Í því húsnæði mun Brimborg veita alhliða þjónustu fyrir Mazda eigendur samkvæmt gæðastöðlum Mazda.

Áratugareynsla starfsmanna
Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna sem sést best á því að margir af rúmlega 200 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 20 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.

Á rúmlega 40 árum í fremstu röð
Uppgangur Brimborgar hefur verið mikill. Verkstæðið Ventill byrjaði smátt árið 1964 og varð grundvöllurinn að Brimborg 1977, sem er nú rúmum 28 árum síðar orðið eitt öflugasta fyrirtæki landsins í innflutningi á farar- og flutningatækjum hvers konar til atvinnurekstarar eða einkanota.

 


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli