Í febrúar 2007 hlaut gæðastjórnunarkerfi Brimborgar ISO 9001 alþjóðlega gæðavottun, fyrst bílaumboða, fyrir allan sinn rekstur. Vottunin nær yfir alla starfsemi Brimborgar í Reykjavík og á Akureyri. Nokkrar nýlegar starfstöðvar eru í vottunarferli.
Hlutverk gæðastjórnunarkerfisins er að tryggja að viðskiptavinir Brimborgar fái umbeðna þjónustu á því gæðastigi sem fyrirtækið hefur sett sér. Ennfremur er því ætlað að tryggja markviss vinnubrögð til hagsbóta fyrir viðskiptavini, starfsfólk, birgja og eigendur. Gæðastjórnun felst í því að tryggja að allir viðskiptavinir fái alltaf sömu gæði, vöru og þjónustu og jafnframt að stöðugt er unnið að umbótum á gæðum, vöru og þjónustu fyrirtækisins. Markmiðið með gæðastjórnunarkerfinu er að auka enn frekar þá ánægju og það traust sem viðskiptavinir bera til Brimborgar undir kjörorðinu „Öruggur staður til að vera á“.
Gæðastjórnunarkerfið er hannað til þess að henta margþættri starfsemi Brimborgar. Við innleiðingu á kerfinu var ráðist í ítarlega greiningu á starfsemi Brimborgar. Í kjölfarið voru 14 aðalferli skilgreind: 7 framkvæmdaferli, 5 stoðferli og 2 umbótaferli. Til þess að tryggja skilvirkni er skipaður eigandi fyrir hvert aðalferli. Viðkomandi eigandi ber ábyrgð á skilvirkni ferlisins, stöðugum umbótum og að markmið séu sett og að allir notendur ferlis séu upplýstir um virkni hans og markmið. Hvert aðalferli lýsir umfangi ákveðinnar starfsemi. Undir hverju aðalferli eru svo verklagsreglur, leiðbeiningar og skjöl sem stýra aðferðafræði við dagleg störf mismunandi þjónustuþátta.
Auk 14 aðalferla hefur Brimborg komið upp gæðahandbók sem lýsir gæðastefnu fyrirtækisins, umfangi gæðastjórnunarkerfisins og samvirkni ferlanna. Gæðastjórnunarkerfið er aðgengilegt öllum starfsmönnum ásamt því að allir nýliðar fá kynningu á gæðastjórnunarkerfinu.
Ýmsar ráðstafanir tryggja stöðugar umbætur á gæðastjórnunarkerfinu. Til að mynda er gerð krafa um gæðaráð. Hlutverk þess er að tryggja virkni gæðastjórnunarkerfisins gagnvart viðskiptavinum Brimborgar og að gæðaferli félagsins séu í stöðugri þróun viðskiptavinum til hagsbóta. Gæðaráð ber jafnframt ábyrgð á að gæðastarf Brimborgar sé í samræmi við kröfur og staðla ISO 9001. Gæðastjóri tryggir að ferlar séu stofnaðir, framkvæmdir og haldið við. Gæðastjóri tryggir að gæðastjórnunarkerfið virki og vinnur í því að tryggja stöðugar endurbætur.
Sem liður í viðhaldi á gæðastjórnunarkerfinu eru 11 starfsmenn víðsvegar úr fyrirtækinu sem sinna hlutverki innri endurskoðenda. Þessir starfsmenn hafa allir sótt námskeið í „innri úttektum“. Innri endurskoðendur framkvæma reglulega innri úttektir á gæðastjórnunarkerfinu. Einnig eru framkvæmdar ytri úttektir á gæðastjórnunarkerfinu af starfsmönnum Vottunar hf. Þessar úttektir eru tvisar á ári og vara í tvo daga í senn.
Forstjóri er ábyrgur fyrir a.mk. árlegu rýni stjórnenda á gæðastjórnunarkefinu og virkni þess þannig að tryggt sé að stöðugar umbætur eigi sér stað og það mæti kröfum félagsins og viðskiptavina þess. Rýni stjórnenda skal tryggja að markmið og frávik frá þeim séu rýnd og þar sem möguleiki er á því að setja í gang aðgerðir til úrbóta.
Liður í stöðugum umbótum gæðastjórnunarkerfisins er hnappur á heimasíðunni þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að senda inn hrós, ábendingu eða kvörtun. Upplýsingar sem berast í gegnum hnappinn eru skráðar, greindar og gerðar eru umbætur í þeim tilvikum þar sem þess er þörf.
Gæðastjórnunarkerfið er þannig uppbyggt að það hjálpar til að sjá fyrir og laga sig að breyttu umhverfi og einnig til að framkvæma stöðugar umbætur á gæðastjórnunarkerfinu og þannig auka ánægju viðskiptavina. Tryggt er með þessu að gæðastjórnarkerfið muni haldast heilsteypt og svara kröfum ISO staðalsins. Ávinningurinn af gæðastjórnunarkerfinu er allra sem Brimborg tengjast, hvort sem er viðskiptavina, starfsmanna, eigenda, birgja og samstarfsaðila.
Smelltu hér á vef notaðra úrvalsbíla Brimborgar og leitaðu að notuðum bíl í gagnagrunni Brimborgar.
Á hverjum degi koma nýir bílar í gagnagrunninn.