Leitaðu

Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

05. september 2010

Taktu visthæf skref og keyrðu meira með hreinni samvisku

Við hjá Brimborg viljum hvetja þig til að taka þátt í því með okkur að tryggja þau lífsgæði sem við viljum hafa á morgun og stefnt er að í dag.

Vertu í hópi þeirra bestu

Nógu lengi höfum við hugsað um umhverfið. En þótt það sé jákvætt að hugsa skynsamlega um umhverfismál finnst okkur hjá Brimborg kominn tími til að gera eitthvað meira í málinu. Enda eru allar athafnir og allar aðgerðir sem við framkvæmum í þessa veru skref í rétta átt. Slík skref viljum við kalla visthæf skref.

Breyttu viðhorfi þínu í dag

Við hjá Brimborg viljum vera í hópi þeirra bestu. Við teljum að öll verðmæti séu mikilvæg og undirstaða allra lífsgæða séu blanda af veraldlegum gæðum og viðhorfum. Viðhorf okkar byggja ekki síst á þeim gildum sem við höfum í heiðri. Því sem okkur finnst mikilvægt. Manngildi eru mikilvæg. Og verðgildi skipta líka máli. Án þessara gilda væru engin lífsgæði til. Með því að sameina góð grunngildi verða til ný tákn um lífsgæði. Við hjá Brimborg lítum svo á að bílar séu hlutlausir í öllu þessu samhengi – að þeir hafi ekki sem slíkir áhrif á umhverfið – heldur við mannfólkið. Við sem eigum bílana, ökum þeim, nýtum þá, þjónustum þá, seljum þá og framleiðum þá. Þessvegna teljum við að viðhorf okkar gagnvart því sem við kaupum skipti jafn miklu máli og það sem við kaupum. Breyttu viðhorfi þínu. Veldu öryggi, visthæfa vöru og þjónustu. Vertu í hópi þeirra bestu. Taktu visthæf skref með Brimborg.

Hvað gerir Brimborg?

Brimborg hefur þegar tekið nokkur visthæf skref í takt við umhverfisstefnu Brimborgar sem mótuð var árið 1996 og lagt áherslu á að sýna gott fordæmi æ síðan. Sá merki áfangi náðist til að mynda fyrr á þessu ári að gæðastjórnunarkerfi Brimborgar var vottað samkvæmt ISO 9001:2000 gæðastaðlinum og undirbúningur að næsta skrefi er í fullum gangi: Vottun á umhverfisstefnu Brimborgar samkvæmt ISO 14001. Í vor hófst vinna við að mennta alla starfsmenn Brimborgar í vistakstri og nú í júlí ýtti Brimborg úr vör tilraunaverkefni við innflutning á etanólbílum sem losa allt að 75% minni koltvísýring en sambærilegir bensínbílar ef miðað er við lífsferil etanólsins. Þetta eru einungis nokkur af fjölmörgum visthæfum skrefum Brimborgar og eru mörg önnur í bígerð.

Gerðu eitthvað raunhæft núna

 Margt er hægt að gera til að minnka sóun. Með því að þræða saman ólíkar hugmyndir tökum við eftir nýjum möguleikum í hversdagslífinu sem við sáum ekki áður. Þannig áttum við okkur betur á því hvar við erum stödd og hvert við viljum fara. Og þannig aukast líkurnar á því að við vitum hvenær við erum komin þangað. Fjölmargar leiðir eru færar að þessu marki. Með því að eiga bæði lítinn bíl og stóran dreifum við álaginu. Færri eknir kílómetrar á stórum jeppa geta mengað minna en fleiri kílómetrar á minni bíl. Með því að endurnýja bílinn reglulega aukum við líka umhverfishæfnina smám saman. Hvað þá ef við kaupum tvíorkubíl eða etanólbíl. Eða með því að kolefnisjafna eða auka við þekkingu okkar á visthæfum akstri jafnt og þétt. Gæði í bensíni og dísilolíu sem við kaupum skipta miklu máli. Nýtum hlutina betur. Hættum að hugsa um umhverfið og gerum eitthvað raunhæft í dag.

Taktu visthæf skref í átt að betri lífsgæðum

Sameiginlega berum við ábyrgð á þeim lífsgæðum sem við viljum hafa á morgun og stefnt er í dag. Allt sem við gerum til að leggja umhverfinu lið skiptir máli. Mörg lítil eða stór skref sem við tökum gera öllu mannfólkinu gagn. Það skapar okkur öllum öryggi. Þannig verður Brimborg sífellt öruggari vinnustaður fyrir okkur sem störfum þar og líka sífellt öruggari kaupstaður fyrir viðskiptavini okkar. Þessvegna fylgjum við visthæfri stefnu í takt við þau visthæfu skref sem við tökum á hverjum einasta degi. Og þessvegna viljum við hvetja þig til að taka þátt í því með okkur að taka visthæf skref. Við viljum hafa þig með. Þannig bætum við öll möguleika okkar og hag í hringiðu lífsins og aukum lífsgæði okkar allra.

 

Visthæf skref eru fjölbreytt og mörg. Færri eknir kílómetrar á stórum jeppa geta til dæmis mengað minna en fleiri kílómetrar á minni bíl. Og með því að eiga lítinn bíl með stórum dreifum við álaginu. Hér eru frekari dæmi um visthæf skref:

• njóttu þess að læra visthæfan akstur
• áætlaðu aksturleiðina fyrirfram og reyndu að stytta hana
• finndu þann hraða sem hentar best og haltu honum jöfnum
• dragðu úr hraðanum þannig að þú þurfir síður að gefa í og snögghemla
• hafðu lengra bil á milli bíla til að draga úr örum hraðabreytingum 
• skiptu um gír á réttum vélarsnúning ef bíllinn er beinskiptur
• farðu með bílinn reglulega í þjónustuskoðun
• endurnýjaðu næst í sparneytnari árgerð sem mengar minna og losar minni koltvísýring
• kauptu nýja bíltækni sem hægt er að kaupa í dag, t.d. etanól- eða metanbíl
• kauptu besta eldsneytið
• veldu bensínvörumerki sem tryggir þér besta íblöndunarefnið
• veldu dísilvörumerki sem tryggir þér besta íblöndunarefnið
• hafðu bílinn í gír þegar þú lætur hann renna
• notaðu gírana til að hægja ferðina
• láttu vélhreyfilinn draga úr ferðinni
• kolefnisjafnaðu aksturinn
• eigðu minni bíl með stórum
• hitaðu kælivatn vélarinnar með forhitara
• keyrðu á nýjum og vönduðum dekkjum
• notaðu ónegld dekk í innanbæjarakstri
• hafðu réttan loftþrýsting í dekkjunum
• láttu skipta reglulega um vélarolíu samkvæmt ábendingum framleiðanda bílsins
• notaðu ávallt bestu vélarolíu samkvæmt ráðleggingum framleiðanda
• dreptu á bílnum ef stoppað er lengur en 30 sek.
• aktu ekki með óþarfa farangur, aukin þyngd eykur eyðslu og mengun
• aktu ekki með gluggana opna ef kostur er því það eykur loftmótstöðu
• minnkaðu loftmótstöðuna með því að taka toppgrindur og box af eftir notkun
• minnkaðu loftmótstöðuna með því að bóna bílinn reglulega með visthæfu bóni
• tjöruþvoðu bílinn með visthæfum tjöruhreinsi

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli