Leitaðu
Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

20. maí 2013
Brimborg | mán. 6. jún. 2011

Þrifdagur í Brimborg

Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, sá til þess að njólinn í kringum Bíldshöfðann vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið.

Starfsmenn Brimborgar í Reykjavík tóku sig til í dag og fegruðu sitt nánasta umhverfi. Með samstilltu átaki tók ekki nema nokkra klukkutíma að hreinsa allt rusl, reita arfa og sópa rykinu burt.

 

Starfsmenn voru í miklum ham og notuðu ýmsa tækni til að flýta fyrir tiltektinni. Í hlíðinni við Ártúnsbrekkuna var notuð línutækni þar sem hlíðinni var skipt í neðst, miðjan og efst. Að sögn eins starfsmanns raðaði sjálfskipaður verkstjóri í stöður með harðri hendi - engin nöfn verða nefnd!

 

Allir sem komust frá létu til sín taka og voru ófáir ruslapokarnir fylltir. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, sagði njólanum stríð á hendur og notaði gaffal við verknaðinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Umhverfið í kring um Bíldshöfða 6 og 8 er nú tilbúið undir sumarið og vonum við að sólin fari að láta sjá sig.

Við þökkum dugnaðarforkunum fyrir hjálpina - þetta var alveg frábært.

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi