Leitaðu
Smelltu á vörumerki Brimborgar

Prenta þessa síðu

19. maí 2013
Brimborg | Thu 26. May 2011

Saga Car Rental opnar nýja þjónustumiðstöð við Leifstöð

Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af starfsmannahópi bílaleigunnar.
Bílaleigan Saga Car Rental sem er í eigu Brimborgar og er sérleyfishafi fyrir Thrifty Car Rental og Dollar Car Rental alþjóðlegu bílaleigurnar opnaði nýlega nýja og glæsilega þjónustumiðstöð við Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að taka á móti erlendum ferðamönnum og sinna viðhaldi og eftirliti með bílaleigubílum. Með hinni nýju aðstöðu verður lögð áhersla á að auka enn frekar fræðslu til ferðamanna við akstur á Íslandi en eitt af markmiðum bílaleigunnar er slysalaus ferðalög um Ísland. Ný og rúmbetri aðstaða mun auka ánægju okkar erlendu viðskiptavina sem er mikilvægt fyrir íslenska ferðaþjónustu og tryggir framúrskarandi aðstöðu fyrir starfsmenn.

Bætt aðstaða og aukin eftirspurn erlendra ferðamenna eftir bílaleigubílum styður einnig við atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum en í þjónustumiðstöðinni í við flugstöðina munu starfa um 20 manns af báðum kynjum og koma langflestir starfsmenn af Suðurnesjum og nágrenni.

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi