Citroën C1 er kominn með nýtt og glæsilegt útlit sem hittir í mark hjá aðdáendum Citroën og hefur hann hvarvetna fengið frábærar viðtökur. Nýtt útlit, aukinn útbúnaður og sparsamari vél Citroën C1 hefur einfaldlega sett ný viðmið fyrir bíla í sínum flokki.
Meira »Þann 14. janúar efndi Brimborg til glæsilegrar frumsýningar á Volvo XC sportjeppunum. Í tilefni af sýningunni var efnt til laufléttrar getraunar þar sem nokkrar spurningar um sýningargripina voru lagðar fyrir gesti. Spurt var um í hvaða bíl City Safety væri staðalbúnaður, eða Borgaröryggi eins og við höfum kallað búnaðinn, hvaða bíll væri ekki keppinautur Volvo XC60 og einnig hvaða nýi og mjög svo spennandi Volvo væri væntanlegur með hækkandi sól.
Meira »Þörfin fyrir staðlað hraðhleðslutæki fyrir rafbíla hefur sífellt aukist á undanförnum árum. Bílaframleiðendurnir Audi, BMW, Daimer, Ford, GM, Porsche og VW hafa ákveðið taka í notkun hleðslutæki sem ætlað er öllum rafbílum fyrirtækjanna og verður það þróað og staðlað áður en það verður tekið í notkun í Evrópu og Bandaríkjunum. Með því móti geta bílategundir þessara framleiðanda notað sama hleðslutækið.
Meira »